You have no items in your shopping cart.
Kosning er hafin í PARTY LIKE A ROCK STAR MYNDBANDA SAMKEPPNI Thors Hammer Accessories & Tuborg í samstarfi við X-ið 977.
Taktu þátt í að koma nokkrum heppnum einstaklingum í sannkallaða V.I.P ferð til Hróarskeldu 2012. Þú getur haft bein áhrif á hver vinnur PARTY LIKE A ROCK STAR MYNDABANDA SAMKEPPNINA með því að kjósa uppáhalds myndbandið þitt með því að setja LIKE á síðuna hér fyrir neðan. Hægt er að kjósa fleira en eitt myndband.
Fáðu nýjustu fregnir af keppninni á FACEBOOK SÍÐU OKKAR beint í æð.
VERÐLAUN
Sá hópur/einstaklingur sem hlýtur titilinn besta myndbandið að mati dómnefndar og almennings hlýtur eftirfarandi verðlaun:
Fyrsta sæti:
- Flug fyrir 4 til Kaupmannahafnar með Iceland Express þann 4.júlí og heim 9.júlí
- Gisting á 5 stjörnu Hilton hóteli í Kaupmannahöfn í eina nótt, frá 4.júlí til 5.júlí
- Hópurinn mun verða sóttur á þyrlu og fljúga beinustu leið á Roskilde Festival
- VIP miðar fyrir 4 á Roskilde Festival 2012 í boði Tuborg
- Og að sjálfsögðu mun hópurinn vera leðraður upp af Thors Hammer vörum
Annað sæti:
- 2 Aðgangsmiðar á Roskilde Festival í boði Tuborg
- Sony Cybershot Hx7 myndavél frá Reykjavík Foto - Laugavegi 51 að verðmæti kr. 74.990,-kr
- Varningur frá Thors Hammer Accessories.
Þriðja sæti:
- Tuborg glaðningur
KOSNING
Hægt er að kjósa sitt uppáhalds myndband til 14. maí 2012. Vægi dómnefndar mun gilda 60% á móti 40% atkvæða almennings
og verða úrslit kynnt í beinni útsendingu á X-inu 977 þann 18.maí 2012.
- Með því að skrá sig til leiks samþykkja þátttakendur neðangreinda skilmála.
- Þátttakendur skulu tilkynna um þátttöku sína fyrir kl. 23:59 þann 21. apríl en síðasti skiladagur fyrir myndskeið eru 24 klst. síðar kl. 23:59 þann 22. apríl. Skráningar og myndskeið sem berast eftir ofangreind tímamörk eru ógild.
- Sé þátttakandi (einstaklingur eða einn af hóp) undir 18 ára aldursmarki mun myndskeiðið vera útilokað frá keppni. Leiki vafi á aldri þátttakanda getur viðkomandi þurft að sanna að hann hafi náð tilskyldum aldri. Geri hann það ekki mun skráning hans vera ógild.
- Öll myndskeið sem eru styttri en 20 sekúndur eða lengri en 3 mínútur verða sjálfkrafa dæmd ógild .
- Myndskeið má ekki vera stærra en 2 GB.
- Þátttakendum er heimilt að senda inn fleiri en eitt myndskeið.
- Aðilar keppninnar afsalar sér allri ábyrgð á þátttökuskráningum sem týnast, skemmast eða tefjast vegna mistaka eða bilana í póstþjónustu, netkerfi, vélbúnaði eða hugbúnaði tölvu að einhverju tagi. Sönnun á sendingu er ekki tekið gild sem sönnun á móttöku.
- Ekki skal í neinu tilfelli starfsfólk fyrirtækisins sem stendur fyrir keppninni og samsteypufyrirtækja þess, nánir fjölskyldumeðlimir starfsfólksins, fulltrúar þess eða aðilar sem tengjast viðkomandi keppni faglega, eiga rétt á að taka þátt í keppninni.
- Með því að senda inn myndskeið staðfestir þátttakandi/þátttakendur eftirfarandi:
10. (i) Þú staðfestir að framlag þitt er allt frumsamið af þér og að allt efni eða upplýsingar sem þú notar við gerð framlagsins brjóti ekki og muni ekki brjóta á hugverkarétti eða höfundarrétti eða öðrum rétti neins þriðja aðila.
11. (ii) Þú staðfestir að þú hafir ekki gert neina samninga við þriðja aðila sem gætu skert rétt fyrirtækisins sem stendur fyrir samkeppninni á því að nota framlag þitt.
12. (iii) Þú þarft að tryggja að allir einstaklingar sem þú hefur notað mynd af í framlagi þínu hafi gefið samþykki sitt fyrir notkun myndar af þeim og afsalað sér öllum rétti sem þeir kunna að hafa á myndunum, myndskeiðunum eða efni á öðrum miðlum sem sent var inn. Séu slíkir aðilar yngri en 18 ára þarftu að fá samþykki foreldris.
13. (iv) Getir þú ekki sannað að ofangreint samþykki hafi verið veitt getur verið að framlag þitt til samkeppninnar verði dæmt ógilt og/eða þú missir vinning.
14. Framlag þitt til samkeppninnar má ekki innihalda neitt efni sem er óviðurkvæmileg, ósiðlegt, ærumeiðandi, fordómafullt, særandi, eða sem sýnir eða hvetur til ólöglegs athæfis. Öll framlög sem innihalda slíkt efni verða dæmd ógild.
15. Ákvörðun dómarana er endanleg og ekki verður hægt að skrifast á um hana eða ræða hana. Ef þú hlýtur vinning verður haft samband við þig í símanúmerinu eða netfanginu sem þú gafst upp þegar þú skráðir þig til þátttöku. Fyrirtækið sem stendur fyrir samkeppninni mun ekki breyta persónuupplýsingum um þig eftir að þú hefur sent inn þátttökuframlag þitt.
16. Ef þú hlýtur vinning hefurðu ákveðið langan tíma til að sækja hann, sem tilgreindur er í sértæku reglunum. Sækir þú vinninginn ekki innan þess tímabils eða á þann hátt sem tilgreindur er fyrir þessa tilteknu samkeppni ógildir það vinningskröfu þína og fyrirtækið sem stendur fyrir samkeppninni áskilur sér rétt til að bjóða vinninginn næsta hæfa þátttakanda sem valinn er í samræmi við sértæku reglurnar.
17. Vinninga má ekki gefa eða selja og þeir eru háðir birgðastöðu. Fyrirtækið sem vinninginn veitir áskilur sér rétt til að veita í staðinn fyrir hvaða vinning sem er annan vinning, að jöfnu eða meira verðmæti. Ekki er boðið upp á að fá vinninga greidda út í reiðufé.
18. Hljótir þú ferðavinning berð þú ábyrgð á því að tryggja að þú og allir aðilar sem ferðast munu með þér komist í ferðina og séu handhafar gildra vegabréfa og allra nauðsynlegra vegabréfsáritana og ferðaskjala fyrir viðkomandi ferð á þeim dagsetningum sem tilgreindar eru.
19. Fyrirtækið sem stendur fyrir samkeppninni áskilur sér rétt til að neita þér um þátttöku eftir geðþótta á skynsamlegum forsendum, gangi hegðun þín þvert á anda almennu reglnanna, einhverra sértækra reglna eða tilgangs samkeppninnar.
20. Skráning þín, framlag þitt og allt efni sem búið er til, þróað eða framleitt af þér í tengslum við framlag þitt verður eign þeirra fyrirtækja sem standa fyrir samkeppninni. Þú veitir aðstandendum keppninnar allan hugverkarétt (þ.m.t. framtíðarrétt) til framlags þíns og sem annars kemur upp í tengslum við framlag þitt. Þú afsalar þér einnig höfundarrétti í tengslum við framlag þitt sem þú kannt nú eða einhvern tíma í framtíðinni að eiga rétt á samkvæmt íslenskum lögum. Þú samþykkir að gera allar þær ráðstafanir og undirrita öll þau skjöl sem nauðsyn krefur til að hægt sé að framfylgja þessu ákvæði.
21. Fyrirtækið sem veitir vinninginn ábyrgist ekki að það muni nota eða veita á annan hátt aðgang að framlagi þínu.
22. Fyrirtækið sem veitir vinninginn áskilur sér rétt til að uppfæra og/eða breyta þessum almennu reglum.
23. Þessar almennu reglur skulu lúta íslenskum lögum og falla undir valdsvið íslenskra dómst
DÓMNEFND
Dómnefndin mun dæma myndböndin á eftirfarandi forsendum:
- Frumleiki
- Innihald og efnistök
- Viral möguleika
Dómnefndin samanstendur af eftirfarandi aðilum:
Sverrir Brynjólfsson - Grafískur Hönnuður hjá Turner / Lazytown.
Mia Lyng Anderssen - PR hjá Promocateur og hefur meðal annars unnið með Bill Clinton, Snoop Dogg, Medina og fleirum.
Hörður Ellert - Ljósmyndari / hljóðupptökumaður hjá hinum heimsfræga hönnuði Henrik Vibskov.
Eigendur Thors Hammer Accessories.
Fulltrúi frá útvarpsstöðinni X-ið 977 og Tuborg.
Thors Hammer armböndin eru nú fáanleg í öllum Dogma búðunum á ÍSLANDI. Laugavegur 30
Kringlan og Smáralind. Einnig er hægt að fylgjast með FACEBOOK síðu okkar og fáðu nýjustu fregnir af keppninni.
Ef frekari upplýsinga er óskað er hægt að senda póst á thorshammer@thorshammer.is
Styrkaraðilar PARTY LIKE A ROCK STAR:
Dómnefndin mun dæma myndskeiðin á eftirfarandi forsendum:
- Frumleiki
- Innihald og efnistök
- Viral möguleika
Dómnefndin samanstendur af eftirfarandi aðilum:
Sverrir Brynjólfsson - Grafískur Hönnuður hjá Turner / Lazytown.
Mia Lyng Anderssen - PR hjá Promocateur og hefur meðal annars unnið með Bill Clinton, Snoop Dogg, Medina og fleirum.
Hörður Ellert - Ljósmyndari / hljóðupptökumaður hjá hinum heimsfræga hönnuði Henrik Vibskov.
Eigendur Thors Hammer Accessories
Fulltrúi frá útvarpsstöðinni X-ið 977



